BRANSINN - REVÍA
BRANSINN - REVÍA er bráðfyndið verk eftir leiklistar- og tónlistarnemendur Listaháskólans undir handleiðslu Dóru Jóhannsdóttur, Kristjönu Stefánsdóttur og Sigurðar Halldórssonar.
Verkið er samstarfsverkefni sviðlista- og tónlistardeildar Listaháskólans þar sem unnið var með samsköpunar aðferðir. Hópurinn vann satíru-kómedíu-senur útfrá samtölum, samvinnu, spuna og skrifum.
Tónlist og hljóðmynd er frumsamin af hópnum. Ferlið einkenndist af mikilli leikgleði og við viljum smita ykkur.