Lokaviðburður áfangans „Hljómur sem efniviður“
Miðvikudag, 18. maí kl. 15-17, kynna nemendur millideildaráfangans „Hljómur sem efniviður “ verkefni sín á opnum viðburði í tónleikasal skólans, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 13.
Miðvikudag, 18. maí kl. 15-17, kynna nemendur millideildaráfangans „Hljómur sem efniviður “ verkefni sín á opnum viðburði í tónleikasal skólans, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 13.
Í listkennsludeild Listaháskóla Íslands er námið um margt öðruvísi skipulagt en víðast er um listkennaranám. það felst í því að í náminu eru listamenn úr öllum listgreinum: myndlist, arkitektúr, hönnun, tónlist, leiklist og dansi, sem hafa ákveðið að bæta við sig menntun í kennslu og miðlun. Þó nemendum bjóðist námskeið og samtal tengd eigin listgreinum er meirihluti námskeiða opinn öllum og gerir það deildina að kraumandi potti listanna.
Kristín Valsdóttir, deildarforseti.
Lærðu um leiklist, takt og sirkuslistir - allt í einni vinnusmiðju! Vinnusmiðjan endar svo á kynningu fyrir foreldra. Leiðbeinendur eru Nick Candy leikari og sirkuslistamaður, Elín Sveinsdóttir leikkona og Kristín Cardew tónlistarkona. Á námskeiðinu verður farið í skemmtilega leiki sem tengja saman tónlist, leiklist og sirkuslistir. Ath. námskeiðið er ætlað fyrir 8-10 ára. Ekki er heppilegt að yngri börn sæki námskeiðið. Takmarkaður sætafjöldi. Miða má nálgast klukkutíma fyrir viðburð í Þjóðleikhúsinu.
23. apríl 14:00 - 16:00
Hvað leynist í náttúrunni sem við höfum aldrei séð eða heyrt? Rúmlega sjötíu nemendur í 5. bekk Laugarnesskóla standa fyrir sýningu á listrænum afrakstri spennandi þriggja daga rannsóknasmiðju í samvinnu við listkennslunema Listaháskóla Íslands og Grasagarð Reykjavíkur.