Listaháskóli Íslands leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi með sterka sýn í stöðu deildarforseta í listkennslu. 

Deildarforseti ber ábyrgð á stefnumótun fagsviðsins og útfærslu hennar í námi, kennslu og rannsóknum. Hann leiðir faglegt samtal deildarinnar, sinnir starfsmannahaldi, málefnum nemenda, almennri starfsemi deildar auk þess sem starfið getur falið í sér kennslu. Starfið er unnið í samræmi við reglur Listaháskólans um akademísk störf sem eru í gildi hverju sinni. 

Starfshlutfall er 100%. Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2024. 

Verkefni og ábyrgð: 
  • Mótun stefnu deildar í samræmi við heildarstefnumörkun skólans
  • Uppbygging náms og kennslu á fagsviðinu
  • Þverfagleg samvinna milli deilda og sviða
  • Samstarf við fagvettvang og alþjóðlegt samstarf
  • Starfsmannahald og málefni nemenda
  • Gerð rekstrar- og fjárfestingaráætlana
  • Starfið getur falið í sér kennslu.
Menntunar-, reynslu- og hæfniskröfur

Deildarforseti skal hafa akademískt hæfi. Hæfi umsækjanda verður metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á lhi.is/log-og-reglur og eru umsækjendur hvattir til að kynna sé reglurnar við gerð umsóknar. 

Auk faglegrar hæfni verður við ráðningu meðal annars litið til þess hvaða hæfileika ætla megi að umsækjandi hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til starfa innan skólans. Frammistaða í viðtölum mun hafa mikið vægi við ákvörðun ráðningar. 

Leitað er eftir umsækjendum sem búa yfir:  
  • Meistaragráðu í kennslufræðum. 
  • Háskólaprófi eða sambærilegri menntun í listgrein. 
  • Góðri þekkingu og reynslu af starfsemi á háskólastigi þ.m.t. rannsóknum og kennslu.   
  • Reynslu af stjórnun.   
  • Virkri þátttöku í fagsamfélagi lista og/eða kennslufræða. 
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og lausnamiðuðu hugarfari.  
  • Mjög góðri íslensku og enskukunnátta og hæfni til að miðla efni í töluðu og rituðu máli.
Skil á umsókn

Umsóknargögnum skal skilað eigi síðar en 24. mars 2024 á netfangið starfsumsokn [at] lhi.is, merkt: Deildarforseti í listkennslu. 

Vegna hæfismats er æskilegt að við gerð umsóknar kynni umsækjendur sér þær reglur sem gilda um veitingu akademískra starfa, leiðbeiningar um gerð ferilskrár ásamt leiðbeiningum um gerð samantekta á ferli.

Til að umsókn sé gild skulu eftirfarandi gögn fylgja: 
  • Ferilskrá samkvæmt leiðbeiningum. Sjá hér.
  • Samantekt á listrænum störfum, rannsóknum, kennslu og akademískum störfum og stjórnun samkvæmt leiðbeiningum. Sjá hér.
  • Staðfest afrit af prófskírteinum. 
  • Greinargerð sem lýsir faglegri sýn umsækjenda á starfið og framtíðarsýn hans á rannsóknir og kennslu á fagsviðinu. Hámark 2 síður.
  • Nöfn tveggja meðmælenda. 
  • Auk þess er umsækjanda heimilt að skila inn öðrum gögnum til stuðnings umsóknar. 

Frekari upplýsingar um starfið veitir Sóley Björt Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri, soleybjort [at] lhi.is 

Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Skólinn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Starfsumhverfi

Starfsumhverfið er gefandi og kraftmikið samfélag nemenda sem stunda nám undir handleiðslu framúrskarandi listamanna og annarra sérfræðinga. Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir fagmennsku og er í fararbroddi fyrir þróun almennrar menntastefnu í listum. Starfsstöðvar skólans eru við Þverholt, Skipholt, Laugarnesveg, Borgartún og Austurstræti í Reykjavík.

 

Upplýsingar veitir soleybjort [at] lhi.is (Sóley Björt Guðmundsdóttir), mannauðsstjóri

Umsóknum skal skilað á starfsumsokn [at] lhi.is 

Umsóknarfrestur er 24. mars 2024

Akademísk störf

Reglur um veitingu akademískra starfa

Leiðbeiningar um gerð ferilskrár vegna umsókna um akademísk störf

Leiðbeiningar um gerð samantekta á ferli vegna umsókna um akademísk störf

Lög og reglur