Fyrir hverja er námskeiðið/Námsstig:
Námskeiðið er opið bæði arkitektum og hönnuðum sem vilja bæta við sig þekkingu í faginu og öllu áhugafólki um hönnun og arkitektúr. Námskeiðið er á BA stigi.  
 
Í námskeiðinu er farið yfir þróun byggingarlistar á Íslandi frá aldamótunum 1900 og til samtímans. Fjallað verður um tæknilegar og samfélagslegar forsendur húsagerðar á ólíkum tímaskeiðum. Þá verður stílhugsun, hugmyndafræði og verk einstakra arkitekta sett í samhengi við heildarþróun byggingarlistar á tímabilinu.
 
Námsmat: Ritgerð og próf
 
Kennari: Pétur H. Ármannsson nam arkitektúr við University of Toronto í Kanada og lauk meistaraprófi í sömu grein frá Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 1990. Hann var deildarstjóri byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur 1993-2005 og hefur kennt við arkitektúr- og hönnunardeild Listaháskóla Íslands frá stofnun hennar. Hann var arkitekt hjá Glámu–Kími arkitektum ehf. 2005-2013 og starfar nú sem sviðsstjóri skipulags- og umhverfis hjá Minjastofnun Íslands. Pétur er höfundur bóka, greina, fyrirlestra og dagskrárefnis um arkitektúr á Íslandi á 20. öld.
 
Staður og stund: Þverholt 11, kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 10.30- 12.10. 
 
Tímabil: 6. nóvember - 6. desember, 2018
 
Forkröfur: BA gráða í arkitektúr og hönnun eða sambærilegt nám
 
Nánari upplýsingar: Hafdís Harðardóttir, deildarfulltrúi hönnunar- & arkitektúrdeildar: hafdis [at] lhi.is