Fyrir hverja er námskeiðið: Námskeiðið hentar þeim sem vilja kynna sér miðaldatónlist með fræðum og framkvæmd. Námskeiðið er valnámskeið á BA stigi tónlistardeildar.
Nemendur hlýða á fyrirlestra þar sem ýmis tónlist miðalda er kynnt, grunnkennslu í lestri á miðaldanótnaskrift og flutningsmáta. Þeir vinna með sönghópnum Voces Thules með áherslu á gregoríanska söngva, aðra miðaldatónlist og/eða þjóðlegan söngarf. Nemendur læra aðferðir við flutning og útsetningar auk þess að snarstefja í miðaldastíl með notkun radda og miðaldahljóðfæra. Námskeiðinu lýkur á opinberum tónleikum.
Námsmat: Ástundun virkni og opinberir tónleikar.
Kennarar: Sigurður Halldórsson og fleiri.
Staður og stund: Nánari upplýsingar síðar.
Tímabil: Nánari upplýsingar síðar.
Verð: 49.000 kr. (án eininga) – 61.200 kr. (með einingum).
Forkröfur: Engar.
Nánari upplýsingar: Elín Anna Ísaksdóttir, verkefnisstjóri tónlistardeildar. elinanna [at] lhi.is.