Fyrir hverja er námskeiðið: Fyrir tónlistarkennara og annað tónlistarfólk með áhuga á miðaldatónlist

Nemendur hlýða á  fyrirlestra þar sem ýmis tónlist miðalda er kynnt, grunnkennslu í lestri á miðaldanótnaskrift og flutningsmáta. Þeir vinna með sönghópnum Voces Thules með áherslu á gregoríanska söngva, aðra miðaldatónlist og/eða þjóðlegan söngarf. Nemendur læra aðferðir við flutning og útsetningar auk þess að snarstefja í miðaldastíl með notkun radda og miðaldahljóðfæra. Námskeiðinu lýkur á opinberum tónleikum.  Námskeiðið er á bakkalárstigi.

 
Námsmat:  Ástundun virkni og opinberir tónleikar.

Kennari: Sigurður Halldórsson

Staður og stund: Sölvhólsgata 13, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga kl. 15:00-17:40

Tímabil: 19.apríl-11. maí 2017

Forkröfur: Stúdentspróf. 

Verð: 48.000 (án eininga) / 60.000 (með einingum)

Nánari upplýsingar: Elín Anna Ísaksdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar: elinanna [at] lhi.is