Undanfarin ár hefur Pari Stave stýrt fjölmörgum sýningum tengdum ljósmyndun, grafík og skandinavískri myndlist. Þar má helst nefna Munch|Warhol and the Multiple Image; New Wave Finland: Contemporary Photography from the Helsinki School; og Propagating Eden: Uses and Techniques of Nature Printing.
Hún sýningastýrði í samstarfi við Ingibjörgu Jóhannsdóttur sýningunni Ýmissa kvikinda líki - íslensk grafík í International Print Center New York sem opnar á Listasafni Íslands í maí.
Pari hefur unnið töluvert með íslenskum listamönnum bæði hér á landi og í Bandaríkjunum. Sýningin Iceland: Artists Respond to Place var sett upp í tveimur söfnum árið 2014, í Katonah Museum og Scandinavia House í New York. Þá var Pari sýningarstjóri Hverfingar í Verksmiðjunni í Hjalteyri í fyrra en þess má geta að út er komin vegleg bók um þá sýningu sem Pari ritstýrði ásamt Rúrí.
Pari Stave hefur gegnt ýmsum stjórnunarstöðum innan safnaheimsins. Í starfi sínu sem innan samtímalistadeildar Metropolitan Museum í New York hefur hún staðið fyrir sýningum íslenskra listamanna sem og stofnað til markvissrar söfnunar á íslenskri listasögu innan bókasafns Metropolitan safnsins.
Umræðuþræðir er samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar og Listaháskóla Íslands. Lagt er upp með að skapa vettvang hérlendis fyrir alþjóðleg tengsl og umræður í fyrirlestraröð ár hvert. Þátttakendur í verkefninu eru virtir sýningarstjórar, fræði- og listamenn sem eiga merkan feril að baki á alþjóðlegum vettvangi.
Fyrirlestrar fara fram á ensku. Aðgöngumiði á safnið gildir.