Bonaventure Soh Bejeng Ndikung er næsti gestur myndlistardeildar LHÍ og Umræðuþráða. Hann mun flytja erindi í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi þann 15. febrúar kl. 20:00.

Bonaventure er sjálfstætt starfandi sýningarstjóri og líftæknifræðingur. Hann er stofnandi og listrænn stjórnandi listamiðstöðvarinnar SAVVY í Berlín og ritstjóri samnefnds tímarits sem fjallar um afríska samtímalist. Hann var einn sýningastjóra Docuemta 14 í Kassel Þýskalandi 2017. Meðal nýlegra sýningstjórnarverkefna má nefna Unlearning the Given: Exercises in Demodernity and Decoloniality, SAVVY Contemporary, 2016; The Incantation of the Disquieting Muse, SAVVY Contemporary, 2016; An Age of our Own Making í Holbæk, MCA Hróaskeldu og Kunsthal Charlottenborg í Kaupmannahöfn, 2016-17; The Conundrum of Imagination, Leopold Museum Vín/ Wienerfestwochen, 2017. Bonaventure hefur kennt og haldið fyrirlestra víða t.d.Tyler School of Art Philadelphia, Deutsche Bank Kunsthalle, Aalto háskólanum Helsinki, Art Basel, Villa Arson Nice, Muthesius Kunsthochschule Kiel, MASS Alexandria, HfbK Hamborg og Gwangju tvíæringnum.

Umræðuþræðir er samstarfsverkefni Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, Listaháskóla Íslands, og Listasafns Reykjavíkur.

Í tengslum við verkefnið hefur allt frá árinu 2012 verið boðið hingað til lands fólki sem nýtur viðurkenningar í hinum alþjóðlega listheimi, ýmist á sviði listsköpunar, fræðastarfa eða sýningarstjórnunar. Lagt hefur verið upp með að skapa vettvang hérlendis fyrir alþjóðleg tengsl og umræður; gestirnir kynnast íslensku listalífi, stunda gestakennslu um leið og þau kynna eigin verk og hugðarefni opinberlega.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Aðgöngumiði á Listasafn Reykjavíkur gildir. Facebook viðburður.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Goethe stofnunina.