Á föstudaginn 24. febrúar kl. 20:00 opnar sýningin Total Gump Show í Gallery Port, Laugavegi 23b.

Tólf nemendur við myndlistardeild Listaháskóla Íslands sýna afrekstur 5 vikna áfangans „Total art“ eða „Gesamtkunstwerk“ undir leiðsögn Jóhönnu Kristbjargar Sigurðardóttur og Helga Þórssonar. Í námskeiðinu er fjallað um tengsl lífs og listar og samruni margs konar listforma sem skapa heildræna virkni í hugmyndafræði og upplifun listaverksins.

Nemendur sem sýna eru:

Anna Margrét Ólafsdóttir
Bergur Nordal
Brigitte Louter
Erla Auðunsdóttir
Harpa Dís Hákonardóttir
Jón Thor Hansen
Jóhann Ingi Skúlason
Jóhanna Rakel 
Nína Kristín Guðmundsdóttir
Ólöf Björk Ingólfsdóttir
Óskar Þór Ámundason
Siddý Erla

Facebook viðburður