Tónlistardegi Halldórs Hansen verður fagnað í Salnum, Kópavogi, 24. maí kl. 17:00.

Sigríður Jónsdóttir, söngkona, heldur erindi um kynni sín af Halldóri, en Halldór var mörgum helstu tónlistarmönnum landsins, ekki síst söngvurum, mikill liðsauki og hugljómun vegna tónlistarþekkingar sinnar alla sína tíð.

Joaquin Páll Palomares, sem verðlaunaður var árið 2008, leikur á fiðlu.

Ungt tónlistarfólk verður verðlaunað úr styrktarsjóði Halldórs Hansen. Verðlaunin eru veitt árlega til ungra tónlistarmanna sem hafa náð framúrskarandi árangri á sínu sviði. Verðlaunahafarnir flytja tónlistaratriði á samkomunni.