Píanótónleikar:

Alexander Smári K. Edelstein og Guðný Charlotta Harðardóttir píanónemendur við tónlistardeild LHÍ koma fram á tónleikum þriðjudaginn 5. desember kl. 20.

Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!



Skammdegistónleikaröð tónlistardeildar er yfirheiti nemendatónleika í lok haustannar. Tónleikaröðin hófst með tónleikum í Hallgrímskirkju þar sem kór og hljóðfæranemendur skólans komu fram. 

Nú hafa tekið við einleiks- og kammertónleikar nemenda og standa þeir samfellt yfir á tímabilinu 25.nóvember til 11.desember.