Í höfuðstöðvum Arion banka opnar sýning á verðlaunahugmyndum arkitekta að þekktum byggingum frá síðustu 80 árum á Íslandi, hugmyndir sem hlutu viðurkenningu í arkitektasamkeppnum en ekki var byggt eftir.

Á sýningunni er að finna verðlaunatillögur arkitekta að þekktum byggingum á Íslandi, hugmyndir sem hlutu viðurkenningu í arkitektasamkeppnum en ekki var byggt eftir. Sýningunni er ætlað að varpa ljósi á arkitektúr, ólíka valmöguleika og öðruvísi framtíðarsýn, hvernig hlutirnir hefðu mögulega getað orðið.

Sýningin spannar ríflega 80 ára tímabil í sögu íslenskrar byggingarlistar og á henni má sjá hugmyndir eftir marga af fremstu arkitektum þjóðarinnar.

Sýningin er unnin í samstarfi við Önnu Dröfn Ágústsdóttir sagnfræðing og Guðna Valberg arkitekt, höfunda bókarinnar Reykjavík sem ekki varð sem kom út árið 2014 og vakti mikla athygli. Auk þess hefur grafíski hönnuðurinn Viktoria Buzukina hjá Hvíta húsinu teiknað heillandi myndheim úr byggingunum, reistum og óreistum, sem verður hluti af sýningunni.