Föstudaginn 10. mars kl. 13 mun Bryndís Snæbjörnsdóttir halda opinn fyrirlestur um verk sín og vinnuaðferðir í fyrirlestrarsal myndlistardeildar að Laugarnesvegi 91.

Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson vinna saman að myndlistaraverkum sínum. Verk þeirra eru oftast stór samfélags- og rannsóknartengd verkefni sem kanna þætti í sögu, menningu og umhverfi jafnt hjá mönnum sem dýrum. Listaverk þeirra hafa verið sýnd á alþjóðavettvangi og sömuleiðis hafa þau flutt erindi á lykil ráðstefnum innan síns sérsviðs víðsvegar um heiminn. Eins og er vinna þau með Anchorage Safninu í Alaska að tveggja ára verkefni um norðurslóðir. Ennfremur vinna þau að þverfaglegu verkefni um ‘Plant Blindness’ sem stutt er af Sænska Vísindaráðinu og verður innsetning þeirra og verk þar af lútandi opnuð í Grasagarðinum í Gautaborg, Svíþjóð í apríl á þessu ári.

Í fyrirlestrinum mun Bryndís fjalla um verk sín og Mark Wilson og þá efnislegu áhersluþætti sem þau vinna með. Hún mun jafnframt ræða hvernig þessir áhersluþættir speglast í myndlistaverkum þeirra og vinnuaðferðum.

Bryndís er prófessor og fagstjóri MA í myndlist við Listaháskólann ásamt því að vera með rannsóknarstöðu við Malmö Art Academy, í Háskólanum í Lund. Frá 2009-2015 var hún prófessor og leiðbeinandi doktorsnema í myndlist hjá Valand Academy í Gautaborg og frá 2013-2015 var hún ásamt Mark Wilson ‘Research Fellow’ hjá Centre for Art + Environment, í Nevada Museum of Art í Bandaríkjunum.

Hamskipti er yfirskrift fyrirlestrarraðar í myndlistardeild Listaháskóla Íslands nú á vorönn. Mikil endurnýjun hefur orðið meðal fastráðinna kennara deildarinnar að undanförnu, en alls tóku 5 nýjir háskólakennarar til starfa við deildina á haustmánuðum 2016.

Þau eru Ólöf Nordal, (sem hélt opinn fyrirlestur í nóvember 2016), Carl Boutard, Bryndís Snæbjörnsdóttir, Bjarki Bragason og Hildur Bjarnadóttir. Auk þess sem nýr deildarforseti, Sigrún Inga Hrólfsdóttir tók til starfa 1. mars 2016. Á fyrirlestrunum kynna kennararnir viðfangsefni sín og rannsóknir innan myndlistar, sem stuðlar að ríkara samtali um myndlist og mismunandi nálganir, innan deildarinnar og í fagsamfélaginu.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.