Meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu 
M.Mus.Ed. / MA

 
 

HÆFNIVIÐMIÐ:

 
Þekking
Þekking og skilningur
Að loknu námi er gert ráð fyrir að nemendur þekki og skilji:
  • Helstu kenningar og hugtök á sviði kennslufræða.
  • Helstu aðferðir og nálganir tónlistarkennslu og miðlunar.
  • Hlutverk aðalnámskrár og gildi hennar í mótun og skipulagi skólastarfs.
  • Þau álitamál sem tekist er á við hverju sinni við undirbúning og framkvæmd kennslu.
  • Siðareglur kennara og gildi fagmennsku í kennarastarfi.
  • Viðurkenndar rannsóknaraðferðir á sviði kennslufræða.
 
Leikni
Hagnýt færni
Að loknu námi er gert ráð fyrir að nemandi hafi færni til að:
  • Nýta þá tækni og verkþekkingu sem kennsla á sviði tónlistar krefst.
  • Nýta persónulega færni við sköpun, þróun og útfærslu hugmynda í kennslu og miðlun.
  • Vinna kennslu- og verkáætlanir í samræmi við aðstæður.
  • Leiða hópa í kennslu- og listtengdum verkefnum.
  • Hafa frumkvæði að samtali milli faggreina.
  • Taka sjálfstæðar, faglegar ákvarðanir og geta rökstutt þær á kennslufræðilegum grunni.
  • Nýta þekkingu sína, skilning og úrlausnarhæfni í samhengi við kennslu og miðlun.
 
Fræðileg færni
Að loknu námi er gert ráð fyrir að nemandi hafi færni:
  • Til að yfirfæra fagþekkingu sína og setja í kennslufræðilegt samhengi.
  • Til að rökstyðja faglega nálgun sína í starfi á fræðilegum grunni.
  • Til að skrásetja og greina niðurstöður, verkefni eða viðburði á viðeigandi hátt.
  • Sem geri viðkomandi læsan á rannsóknir á sviði kennslufræða.
  • Til að meta niðurstöður rannsókna á faglegum grunni.
  • Til að afla, greina og meta gögn í rannsóknar- og listsköpunarferli.
 
Hæfni
Hæfni í miðlun og samskiptum
Að loknu námi  er gert ráð fyrir að nemandi hafi hæfni til að:
  • Miðla þekkingu sinni, hugmyndum og kunnáttu í tónlist til margs konar hópa við mismunandi aðstæður.
  • Hafa frumkvæði að kennslu- og listverkefnum, stýra þeim og axla ábyrgð á vinnu einstaklinga og hópa.
  • Taka virkan þátt í samstarfi.
 
Fræðileg hæfni
Að loknu námi  er gert ráð fyrir að nemandi hafi hæfni til að:
  • Ígrunda og leggja mat á eigin frammistöðu á fræðilegum grunni og nýta til persónulegrar þróunar og fagmennsku í starfi.
  • Til að meta og greina niðurstöður rannsókna (eigin og annarra) á faglegum grunni.
  • Miðla fræðilega rökstuddum niðurstöðum verkefna á viðeigandi hátt.
  • Beita vinnubrögðum og námstækni sem frekara nám á rannsóknartengdu meistara- og doktorsstigi krefst (eftir því sem við á).
S Skylda
V Val

Fyrri ár

Kennsluskrá ársins 2017- 2020