Hönnunardeild

Grafísk hönnun BA

Kennsluskrá 2023-2024

Hæfniviðmið námsleiðar

Þekking

Að loknu námi býr nemandi yfir þekkingu á sviði grafískrar hönnunar.
Í því felst að nemandi:

  • Búi yfir þekkingu á kenningum, aðferðum og hugtökum um grafíska hönnun.
  • Hafi grunnþekkingu á starfsumhverfi grafískra hönnuða.
  • Hafi innsæi og skilning til að nálgast viðfangsefni í hönnun á einstaklingsbundinn hátt.
  • Hafi skilning á hugmyndafræði og þeim hugtökum sem liggja til grundvallar grafískrar hönnunar.
  • Þekki undirstöðuatriði leitar- og upplýsingartækni.
  • Þekki og geti beytt aðferðum rannsókna í grafískri hönnun.

Leikni

Að loknu námi getur nemandi beitt aðferðum og verklagi á sviði grafískrar hönnunar.
Í því felst að nemandi:

  • Geti tekið gagnrýna afstöðu til upplýsinga og aðferða.
  • Hafi tileinkað sér gagnrýna sýn á eigin verk og verk annarra.
  • Geti tekið þátt í gagnrýnum umræðum um grafíska hönnun.
  • Geti tekið ákvarðanir og rökstutt þær á faglegum grunni.
  • Búi yfir tækni og færni til að geta unnið sjálfstætt og skipulega að
    viðfangsefnum í grafískri hönnun.
  • Hafi tileinkað sér víðsýni og frumleika í hugsun.
  • Geti lagt sjálfstætt mat á á þær hugmyndir sem unnið er með.
  • Hafi tamið sér leitandi og fjölbreytt vinnubrögð og áræðni í úrlausnum.
  • Geti nýtt sér tækni og búnað sem þjónar greininni.

Hæfni

Að loknu námi getur nemandi hagnýtt þekkingu sína og leikni í starfi og/ eða frekara námi.
Í því felst að nemandi:

  • Hafi þjálfað með sér sýn og hæfni til sjálfstæðrar sköpunar og/eða óhefðbundinnar nálgunar í verkum sínum.
  • Hafi sjálfstæði og samskiptahæfni til að geta tekið virkan þátt í samstarfi og leitt verkhópa.
  • Geti unnið sjálfstætt og skipulega, sett sér markmið, valið aðferðir við hæfi, gert verk-/starfsáætlun og fylgt henni. 
  • Geti túlkað, kynnt og miðlað hugmyndum og viðfangsefnum með skýrum hætti í verkum sínum og í rituðu máli.
  • Hafi þróað með sér áhugasvið fyrir frekara námi í sinni grein.
F Fræði
T Tækni
V Vinnustofa
B Bundið val
S Skylda
V Val

Fyrri ár