Fyrir hver er námskeiðið: Námskeiðið hentar öllum list- og verkgreinakennurum sem sinna umsjónakennslu eða stefna á að sinna umsjónarkennslu. Valnámskeið fyrir meistaranema í listkennslu.
 
Í námskeiðinu verður sjónum beint að mikilvægi umsjónarkennarans í almennu skólastarfi og því sem kalla má hinar þrjár víddir umsjónarkennarastarfsins.
Fyrsta víddin snertir persónuleg viðhorf umsjónarkennarans og snýst um samskiptahliðina; við nemendur og forráðamenn þeirra, aðra kennara og stuðningsaðila innan skólans og samskipti nemenda í milli.
Önnur víddin snertir það umhverfi sem umsjónarkennarinn starfar í; skóla margbreytileikans, fjölmenningarlegt samfélag og nemendur með sértæka námsörðugleika.
Margvísleg viðfangsefni tilheyra þriðju víddinni; forvarnir, heilsuvernd, velferð og þróunarstarf.
                                                       
Námsmat: Símat með áherslu á einstaklings- og hópverkefni
Kennari: Erla Karlsdóttir
Staður og stund: Laugarnes, 5 skipti, miðvikudagar kl. 14:30-17.20
Tímabil: 22. febrúar til 22. mars 2023
Einingar: 2 ECTS.
 
Kjósi nemendur að taka námskeið án eininga gefur kennari verkefnum nemenda ekki endurgjöf. Verðmunur ræðst þ.a.l. af auknu vinnuálagi kennara.
Námskeið sem tekin eru án eininga geta þó skráðst, án eininga, á námsferil nemenda.
Tíma- og dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
 
Verð: 30.500 kr. (án eininga) / 40.800 kr. (með einingum).
 
Forkröfur: BA gráða eða sambærilegt nám.
Nánari upplýsingar: Karólína Stefánsdóttir, verkefnastjóri, karolinas [at] lhi.is
Kennsluskrá: https://ugla.lhi.is/kennsluskra/index.php?tab=nam&chapter=namskeid&id=76...