Fyrir hver er námskeiðið: Námskeiðið hentar fyrir þau sem hafa áhuga á að kynna sér tónbókmenntir 17. og 18. aldar. Námskeiðið er valnámskeið á BA stigi tónlistardeildar.
 
Í námskeiðinu eru tekin fyrir mikilvæg afmörkuð viðfangsefni er tengjast tónbókmenntum 17. og 18. aldar. Viðfangsefni geta verið breytileg á milli ára.
 
Kennsla fer að mestu fram í fyrirlestrum þar sem leitast verður við að bregða ljósi á sögulegt umhverfi, fagurfræði, formfræði og tónsmíðaaðferðir í tengslum við áherslur námskeiðs hverju sinni.
 
Námsmat: Próf, verkefni, ástundun.
 
Kennari: Kolbeinn Bjarnason.
 
Staður og stund: Skipholt. 
 
23.01.2020 08:30 - 10:10
30.01.2020 08:30 - 10:10
13.02.2020 08:30 - 10:10
20.02.2020 08:30 - 10:10
12.03.2020 08:30 - 10:10
19.03.2020 08:30 - 10:10
26.03.2020 08:30 - 10:10
02.04.2020 08:30 - 10:10
16.04.2020 08:30 - 10:10
30.04.2020 08:30 - 10:10
 
Tímabil: 23. janúar - 30. apríl 2020.
 
Einingar: 4 ECTS.
 
Kjósi nemendur að taka námskeið án eininga gefur kennari verkefnum nemenda ekki endurgjöf. Verðmunur ræðst þ.a.l. af auknu vinnuálagi kennara.
 
Námskeið sem tekin eru án eininga geta þó skráðst, án eininga, á námsferil nemenda.
 
Verð: 49.000 kr. (án eininga) / 61.200 kr. (með einingum)
 
Forkröfur: BA gráða eða sambærilegt nám.
 
Nánari upplýsingar:  Sunna Rán Stefánsdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar: sunnaran [at] lhi.is