Fyrir hver er námskeiðið: Námskeiðið hentar kennurum og listafólki sem kemur að fræðslu eða miðlun. Valnámskeið í meistaranámi í listkennslu.
Í námskeiðinu læra nemendur grunnhandbrögð við tálgun úr ferskum við, fá fræðslu um skógarnytjar í nærumhverfinu, læra að þekkja nokkrar helstu trjátegundir og tengja saman ytra form og innri gerð trjánna.
Þau kynnast því hvaða áhrif mismunandi ræktunaraðstæður og umhirða trjáa hafa á gæði og form viðarins. Í námskeiðinu verða kynntar hugmyndir um útikennslu og gildi þess að vinna með tálgun úr náttúrulegu efni sem leið til sjálfstyrkingar og samtengingu handa og hugar.
Þá verður farið í gönguferð með heimspekingi sem mun fjalla um náttúruna út frá fagurfræðilegu sjónarhorni.
Námskeiðið endar á dagsferð í Kjós þar sem hópurinn nýtur þess að dvelja daglangt í skógi og upplifa hann á fjölbreyttan hátt með öllum skynfærum.
Í lok námskeiðis eiga nemendur að geta:
-
beitt grunn-handbrögðum við tálgun úr ferskum við með hníf og öxi,
-
valið fjölbreytt hráefni til listsköpunar úr íslenskum skógi,
-
komið auga á og nýtt sér möguleika til hönnuar- og/eða listkennslu utandyra,
-
sett náttúruupplifun að einhverju leyti í fagurfræðilegt samhengi.
Námsmat: Mæting, virkni og verkefni unnin í tímum.
Kennarar: Björk Gunnbjörnsdóttir og Haraldur Jónasson
Staður og stund: Laugarnes, kl. 13:00-15:50
Tímabil: 25. ágúst til 19. september, 2023
1. tími: 31. ágúst kl. 13:00-15:50
2. tími: 1. september, kl. 13:00-15:50
3. tími: 5. september, kl. 9:20-12:10
3. tími: 5. september, kl. 9:20-12:10
5. tími: 8. september, kl. 13:00-15:50
6. tími: 12. september, kl. 9:20-12:10
7. tími: 19. september, kl. 9:20-12:10
7. tími: 19. september, kl. 9:20-12:10
Einingar: 2 ECTS
Forkröfur: BA gráða eða sambærilegt nám.
Tíma- og dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að athuga að vegna COVID-19 þá gæti þurft að gera fyrirvaralítið breytingar á kennslufyrirkomulag.
Nánari upplýsingar: opni [at] lhi.is