Fyrir hver er námskeiðið: Námskeiðið er opið kennurum og listafólki með BA gráðu eða sambærilegt nám. Námskeiðið nýtist öllum sem vinna með texta í starfi sínu, kennslu eða skrifa sér til ánægju. Valnámskeið í meistaranámi í listkennslu.
 
Í námskeiðinu fá nemendur að spreyta sig á fjölbreyttum aðferðum við að skrifa texta í ýmsu samhengi. Áhersla er lögð á aðferðir sem leysa sköpunarkraftinn úr læðingi og losa um hömlur.
 
Námsmat: Verkefni, þátttaka og virkni.
 
Kennari: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, ljóðskáld, rithöfundur, tónlistarmaður og útgefandi, gaf út fyrstu ljóðabók sína árið 1977 og hefur síðan sent frá sér fjölda ljóðabóka með frumortum og þýddum ljóðum, eina skáldsögu og á annan tug barnabóka. Ennfremur söngljóð og tónlist á fjölmörgum geisladiskum. Frá árinu 1992 hefur hann auk þess rekið útgáfuna Dimmu, sem gefur út bækur og tónlist.
 
Staður og stund: Laugarnes, þriðjudagar kl. 13- 15.50. (ekki kennsla 22. og 29. október).
 
Tímabil: 8. október - 26. nóvember 2019.
 
Einingar: 4 ECTS.
 
Kjósi nemendur að taka námskeið án eininga gefur kennari verkefnum nemenda ekki endurgjöf. Verðmunur ræðst þ.a.l. af auknu vinnuálagi kennara.
 
Námskeið sem tekin eru án eininga geta þó skráðst, án eininga, á námsferil nemenda.
 
Verð: 49.000 kr. (án eininga) – 61.200 kr. (með einingum).
 
Forkröfur: B.A. gráða eða sambærilegt nám.
 
Tíma- og dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
 
Nánari upplýsingar: Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, verkefnastjóri listkennsludeildar. olofhugrun [at] lhi.is / 545 2249.