Fyrir hverja er námskeiðið: Fyrir áhugasama úr öllum listgreinum

Nemendum verður skipt upp í hópa og unnið allan daginn í nokkra daga að gagnvirku og/eða margmiðlunarverki sem verður sýnt við lok námskeiðsins. Kennarar ganga á milli hópa og veita leiðbeiningar. Meðfram verða haldnir fyrirlestrar listamanna úr ólíkum geirum og sóttir viðburðir á Raflost raflistahátíðinni. Að lokum er skilað inn “dokúmentasjón” af verkinu. Námskeiðið er á bakkalárstigi.

 
Námsmat:  Verkefni í lok námskeiðs 70%. Mæting 20%, smáverkefni í upphafi námskeiðs 10%.

Kennari: Áki Ásgeirsson, Jesper Pedersen, Ríkharður H. Friðriksson

Staður og stund: Laugarnesvegi 91, daglega

Tímabil: 22.- 26.maí 2017

Forkröfur: Stúdentspróf. 

Verð: 30.000 (án eininga) / 40.000 (með einingum)

Nánari upplýsingar: Elín Anna Ísaksdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar: elinanna [at] lhi.is