Fornafn: 
Guðný Guðmundsdóttir

Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari gegndi starfi 1. konsertmeistara við Sinfóníuhljómsveit Íslands frá 1974-2010. Hún leiddi hljómsveitina undir stjórn margra heimsþekktra hljómsveitarstjóra og lék með mörgum frægustu einleikurum og einsöngvurum heims. Auk konsertmeistarastarfsins hefur hún kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík í meira en fjóra áratugi og við Listaháskóla Íslands. Margir nemanda hennar hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna og eru í leiðandi stöðum, bæði heima og erlendis.

Guðný hefur staðið á tónleikapalli frá sjö ára aldri. Hún hefur komið fram sem einleikari, í kammertónlist og sem gestakennari víða í Bandaríkjunum, Evrópu og einnig í Asíu. Á kennsluferðum sínum leitast hún við að kynna íslenska tónlist.

Guðný  hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir tónlistarstörf, s.s. Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1989 og Menningarverðlaun DV árið 1990. Einnig er hún handhafi gullmerkis F.Í.H. og er heiðursfélagi í F.Í.T. Síðastliðið vor hlaut hún gullmerki Tónskáldafélags Íslands fyrir framlag sitt við flutning á íslenskri tónlist.

Guðný  er meðlimur í Tríói Reykjavíkur ásamt Richard Simm píanóleikara og Gunnari Kvaran sellóleikara. Hún hefur leikið inn á nokkrar geislaplötur, bæði einleik og kammertónlist.

Geisladiskur með einleiksverkum eftir Þórarin Jónsson, J.S. Bach, Hallgrím Helgason og Hafliða Hallgrímsson kom á markaðinn haustið 2002 og var tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna sama ár.

Tónlistarmenntun sína hlaut Guðný við Tónlistarskólann í Reykjavík undir handleiðlu Björns Ólafssonar. Síðar við Eastman School of Music og Juilliard í New York þar sem aðalkennarar hennar voru Carroll Glenn og Dorothy DeLay.

Sérsvið: 
Deild á starfsmannasíðu: