Rannsóknarsvið rannsóknarstofu í listkennslufræðum: Listir og sjálfbærni; Listir og samfélag; Heimspeki, siðfræði og listmenntun.
Markmið Rannsóknarstofu í listkennslufræðum er að auka og efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði listnáms og listkennslu á öllum skólastigum í náinni samvinnu við vettvang. Markmiðið er einnig að hvetja til frumkvæðis að rannsóknum og að skapa aðstæður til að miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna á sviðinu m.a. með ráðstefnum og málþingum, útgáfu fræðigreina og fræðirita og með fyrirlestrahaldi.
Hlutverk rannsóknarstofunnar er að vera vettvangur samtals listgreinakennara, listamanna og allra sem sinna rannsóknum á sviði listnáms, -kennslu og listmiðlunar. Hún tekur til allra listgreina og lögð verður áhersla á þverfaglegar nálganir og tengsl við alþjóðlegar rannsóknastofur.
Stefnt er að sem víðtækustu samstarfi við þá aðila sem vinna að rannsóknum og þróun á náms- og kennsluháttum lista og skapandi skólastarfi með áherslum á samtíma málefni, sem spanna mismunandi starfshætti og orðræðu (listir, menntun, kennslufræði, pólitík, menningarfræði, stafræna miðlun, heimspeki, safnafræðslu og samfélagstengdar listir). Samstarf og samtal milli listgreina og annarra fræðigreina felur í sér óþrjótandi möguleika á rannsóknar- og þróunarverkefnum.
Mikilvægt er að rækta náið samstarf við grasrótina, fagfélög listamanna og menningar- og listastarfsemi í landinu með það fyrir augum að efla ennfrekar nýsköpun og styðja við vaxtarsprota listkennslu á sem breiðustum grunni.
Rannsóknarstofan starfar undir hatti listkennsludeildar Listaháskóla Íslands og hefur aðsetur þar.
Stjórn Rannsóknarstofu í listkennslufræðum
Kristín Valsdóttir, deildarforsteti Listkennsludeildar. Formaður stjórnar.
Guðný María Jónsdóttir, leikstjóri og leiklistarkennari í Borgarholtssskóla.
Ingimar Ólafsson Waage, heimspekikennari í Garðaskóla og doktorsnemi við HÍ.
Hanna Ólafsdóttir, lektor í myndlistarkennslu við Menntavísindasvið HÍ.
Klara Þórhallsdóttir, verkefnastjóri fræðslu Listasafns Reykjavíkur.
Þórdís Sævarsdóttir, formaður Tónmenntakennarafélags Íslands