Styrktarsjóður Halldórs Hansen var stofnaður 11. desember 2002. Halldór Hansen barnalæknir lét eftir sig mikið tónlistarsafn með um 10.000 hljómplötum, sem hann ánafnaði Listaháskóla Íslands í erfðaskrá ásamt öðrum eigum sínum sem skyldu renna í sérstakan sjóð í hans nafni.
Veittar voru viðurkenningar úr sjóðnum í sautjánda sinn þann 18. júní 2021. Auk viðurkenninga til tónlistarnema var að þessu sinni einnig veitt heiðursviðurkenning fyrir framlag á sviði tónlistar en hana hlaut Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari (sjá frétt).
Halldór, húsið hans og hljómplöturnar - texti eftir Árna Tómas Ragnarsson
Styrktarsjóður Halldórs Hansen - tilurð og saga
Meginmarkmið sjóðsins eru að:
- Varðveita tónlistarsafn Halldórs Hansen og miðla efni úr því.
- Styrkja uppbyggingu og styðja við tónlistarsafn Listaháskóla Íslands.
- Veita árlega styrk í nafni Halldórs Hansen til tónlistarnema Listaháskóla Íslands sem náð hefur framúrskarandi árangri að mati sjóðsstjórnar.