3 árs nemendur á leikarabraut LHÍ halda sína lokasöngtónleika þann 7.desember kl.18:00 og 21:00 í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13
Flutt verður söngdagskrá sem ber yfirskriftina “Stríð og Friður” og er hún samsett af sönglögum frá hinum ýmsum tímabilum 20 aldar. Þetta eru allt þekkt sönglög sem flestir þekkja, bæði sóló, dúettar, tríó, kvartettar og kórar.
Söngdagskráin er samstarfsverkefni leikarabrautar og tónlistardeildar LHÍ en hefð hefur skapast um þetta samstarf á undanförnum árum á lokaári leikaranema.
Söngvarar:
Árni Beinteinn Árnason
Ebba Katrín Finnsdóttir
Eygló Hilmarsdóttir
Elísabet S. Guðrúnardóttir
Hákon Jóhannsson
Hlynur Þorsteinsson
Júlí Heiðar Halldórsson
Þórey Birgisdóttir
Hljómsveit:
Árni Freyr Jónsson – Gítar ( Skapandi tónlistarmiðlun )
Ingibjörg Elsa Turchi – Bassi ( Tónsmíðar )
Benediktas Bazaras – Trommur ( Söngdeild )
Agnes Eyja Gunnarsdóttir – Fiðla ( Söngdeild )
Sævar Helgi Jóhannsson – Hljómborð (Tónsmíðar )
Kjartan Valdimarsson – Píanó, Hljómborð, Harmonikka
Útsetningar og hljómsveitarstjórn: Sævar Helgi Jóhannsson og Kjartan Valdimarsson
Aðstoð við sviðsetningu: Stefán Jónsson
Söngkennari og umsjón: Björk Jónsdóttir