Sláðu inn leitarorð
Listaháskólinn tilnefndur til Erasmus+ gæðaviðurkenningar
02. nóvember 2017
Erasmus+ fagnar 30 ára afmæli í ár. Til að fagna tímamótunum býður Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi til afmælishátíðar í Hörpu miðvikudaginn 8. nóvember nk.
Á afmælishátíð Erasmus+ verða afhentar gæðaviðurkenningar og er LIstaháskólinn tilnefndur fyrir verkefnið Sköpun, miðlun og frumkvöðlastarf (NAIP).
Síðast liðin tvö ár hefur Listaháskólinn leitt samstarfsverkefni níu evrópskra tónlistarháskóla. Verkefnið var styrkt af Erasmus+ áætluninni með það að markmiði að þróa námsefni fyrir tónlistarkennslu á háskólastigi og aðlaga það að hlutverki tónlistarmanna nútímans.
Afmælishátíð Erasmus+ er öllum opin.