Meginþema sýningarinnar er núningur borgar og menningar og
birtingarmyndir listarinnar í samfélaginu. Sýningin hverfist um
hugmyndir listamanna sem nýta sér þær sérstæðu aðstæður sem borgin býður
uppá, allt frá einfaldri framsetningu borgarinnar í myndlist til
hverskonar vinnu með staðhætti, inngrip í opinber rými, jafnt sem
flóknari samfélagslegar tengingar.

Nokkrir þessara listamanna hafa komið að kennslu í vinnustofu á
vormisseri við Listaháskóla Íslands, þar sem nemendur hafa tekist á við
tengdar listhugmyndir og þróað út frá þeim verk á sínum forsendum fyrir
sýninguna.

Einnig taka þátt í sýningunni fræðimenn sem skrifa greinar um
„myndlistina í borginni og borgina í myndlistinni“ út frá eigin
sjónarmiðum og yfirskrift sýningarinnar.

Sýningin í Listasafni ASÍ er einskonar miðstöð eða vinnustofa
verkefnisins, en nokkur af verkum listamannana verða einnig sett upp á
ólíkum tímum og í margvíslegum birtingarmyndum á víð og dreif um borgina
á þessu ári. Á sýningunni verða bakgrunnsupplýsingar um verk og
athafnir listamannanna. Sýningarrýmið er þannig einskonar
rannsóknarmiðstöð eða sameiginleg vinnustofa ólíkra listamanna. Vikulega
á sýningartímanum verður boðið til umræðna og málþinga um hugmyndir og
verkefni listamannanna og málefni þeim tengdum.

Sýningarstjórar eru Einar Garibaldi Eiríksson, Kristinn E. Hrafnsson og Ólafur S. Gíslason

Aðrir sýnendur eru:

Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ásmundur Ásmundsson, Berglind Jóna Hlynsdóttir,
Brynjar Helgason, Christian Hasucha, Elin Wikström, Gunnar J. Árnason,
Hjálmar Sveinsson, Hlynur Hallsson, Indriði Arnar Ingólfsson, Ingirafn
Steinarsson, Ívar Glói Gunnarsson, Karl Torsten Stallborn, Katrín
Eyjólfsdóttir, Katrína Mogensen, Margrét H. Blöndal í samstafi við
Harald Jónsson og Hörpu Árnadóttur, Nikulás Stefán Nikulásson, Nína
Óskarsdóttir, Páll Haukur Björnsson, Ósk Vilhjálmsdóttir, Ragna
Sigurðardóttir, Stefán Óli Baldursson, Una Ösp Steingrímsdóttir, Unnar
Örn J. Auðarson, Þorvaldur Þorsteinsson, Þröstur Valgarðsson og Æsa
Sigurjónsdóttir.