Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands vekur athygli á Hönnunarverðlaunum Íslands sem haldin verða í Safnahúsinu á morgun kl.18:00. 

Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins. Verðlaunin verða veitt hönnuði, arkitekt, hönnunarteymi eða stofu fyrir framúrskarandi ný verk; einstakan hlut, verkefni eða safn verka. hönnuðir þurfa að vera félagar í einu af aðildarfélögum hönnunarmiðstöðvar íslands eða fagmenn á sínu sviði til að hljóta verðlaunin. ný verk eru verk sem lokið hefur verið við á síðustu tveim til þremur árum fyrir afhendingu verðlaunanna. Við val á verðlaunahafa mun haft í huga að verið er að leita að framúrskarandi verki, eða safni verka, sem standa á sem fulltrúi þess besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs. verkið/verkin þurfa að vera framúrskarandi, fela í sér frjóa hugsun, snjalla lausn, vandaða útfærslu og fagmennsku í öllum vinnubrögðum. Hönnunarverðlaun íslands 2016 eru peningaverðlaun að upphæð 1.000.000 krónur, veitt af iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Besta fjárfesting í hönnun er viðurkenning sem veitt var í fyrsta sinn 2015. Fyrirtæki sem eiga þess kost að hljóta viðurkenninguna Besta fjárfesting í hönnun 2016 hafa hönnun og arkitekúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Öll fyrirtæki sem starfa á Íslandi koma til greina.

 

Forval dómnefndar

Forval dómnefndar samanstendur af eftirfarandi hönnunarverkefnum

As We Grow

As We Grow er íslenskt hönnunarfyrirtæki í eigu Guðrúnar Rögnu Sigurjónsdóttir prjónahönnuðar, Maríu Th. Ólafsdóttur fatahönnuðar og Grétu Hlöðversdóttur framkvæmdastjóra. Með vörulínunni tvinna þær saman fagurfræði, hefðum og nútíma í endingargóðan fatnað sem bæði vex með hverju barni og endist á milli kynslóða.

Lulla Doll

Lulla doll er afrakstur Eyrúnar Eggertsdóttur frumkvöðuls, Birnu Bryndísar Þorkelsdóttur hönnuðar og Sólveigar Gunnarsdóttur markaðsstjóra. Dúkkunni er ætlað að róa og veita ungabörnum öryggistilfinningu og betri svefn, en hún líkir eftir hjartslætti og andardrætti foreldris.

Or Type

Leturstúdíóið Or Type stofnuðu grafísku hönnuðirnir Guðmundur Úlfarsson og Mads Freund Brunse árið 2013. Letur þeirra hafa nú þegar farið víða og verið notuð á fjölbreyttar vörur s.s. tímarit, umbúðir og búninga íslenska karla- og kvennalandsliðsins í knattspyrnu á EM.

Orka til framtíðar

Sýningin Orka til framtíðar í Ljósafossstöð skýrir á gagnvirkan hátt orku og hvernig má bæði beisla hana og nýta. Hönnuðir sýningarinnar eru Gagarín og Tvíhorf arkitektar en fjöldi annarra fyrirtækja og sérfræðinga komu að sýningunni.  

 

Besta fjárfesting í hönnun

Að auki eru veitt verðlaun fyrir bestu fjárfestingu í hönnun. Í umsögn dómnefndar segir: "Viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun er veitt fyrirtæki sem hefur hönnun eða arkitektúr að leiðarljósi frá upphafi verka til að auka verðmætasköpun og samkeppnishæfi. Viðurkenningin er nú veitt í annað sinn og er óhætt að fullyrða að vinningshafinn í ár hafi fengið til starfa einhverja færustu hönnuði landsins,, hver á sínu sviði. Með þessu hefur fyrirtækið skilgreint hönnun sem mikilvægan þátt í öllu þróunarferli og skapað ímynd og upplifun tengda fyrirtækinu með framúrskarandi hætti."

 

Málþing um höfundarrétt

Auk hönnunarverðlaunanna er vakin sérstök athygli á málþinginu sem haldið er sama dag kl.15.30. Þar verður höfundarréttur tekinn fyrir, sem á að sjálfsögðu erindi við nemendur enda ekki ný saga að brotið sé á höfundarrétti og að eigendur höfundarréttar þurfi stöðugt að verja hann.
 
Skráning á málþingið fer fram hér.