Tónlistardeild
Tónsmíðar M.Mus/MA
Kennsluskrá 2023-2024
*Aðalfagsval: nemandi velur annað hvort hljóðfærafræði eða raftækni/ hljóðfræði.
**Þverfaglegt námskeið: skylda fyrir alla meistaranema LHÍ.
***Rannsóknarþjálfun.
Nemendur velja eina af eftirfarandi námsleiðum
1) 20 ECTS verkefni í tónsmíðum og 10 ECTS lokaverkefni (MA)
2) 10 ECTS verkefni í tónsmíðum og 20 ECTS lokaverkefni (MA)
3) 26 ECTS verkefni í tónsmíðum og 4 ECTS greining (MMus)
2) 10 ECTS verkefni í tónsmíðum og 20 ECTS lokaverkefni (MA)
3) 26 ECTS verkefni í tónsmíðum og 4 ECTS greining (MMus)
Hæfniviðmið námsleiðar
Þekking
Að loknu námi býr nemandi yfir þekkingu á sviði tónlistar. Í því felst að nemandinn:
- þekki fagleg viðfangsefni tónlistar og álitamál,
- hafi aflað sér þekkingar með rannsóknum og listsköpun,
- geti fært rök fyrir eigin úrlausnum,
- þekki til helstu strauma, kenninga, aðferða og verka á sviði tónlistar,
- þekki til ólíkra rannsóknaraðferða á fagsviði tónlistar,
- hafi þekkingu á siðfræði tónlistar.
Leikni
Að loknu námi getur nemandi beitt aðferðum og verklagi á sviði tónlistar. Í því felst að nemandinn:
- hafi tileinkað sér viðeigandi vinnubrögð og aðferðir til sköpunar og/eða flutnings á tónlist,
- hafi kunnáttu til að greina tónlist og miðla niðurstöðum hennar á ólíkan hátt,
- geti skilið og tekist á við flókin viðfangsefni innan tónlistar í fræðilegu samhengi,
- geti nýtt þekkingu sína og skilning í faglegri vinnu og starfsumhverfi tónlistar,
- hafi náð tökum á og geti beitt viðeigandi aðferðum, tækni og/eða hugbúnaði við útfærslu á verkum,
- geti aflað gagna, greint þau og metið í rannsóknar- og listsköpunarferli,
- geti sýnt frumleika í verki, beitt innsæi og ímyndunarafli til hvers konar tónlistariðkunar,
- geti nýtt þekkingu sína, skilning og úrlausnarhæfni við nýjar og ókunnuglegar aðstæður og í þverfaglegu samhengi tónlistar og tengdra fræða,
- geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir og þróað verkefni og sett í samhengi við kenningar fagsviðs tónlistar,
- hafi getu og innsæi til að samþætta þekkingu og takast á við flókin viðfangsefni tónlistar og miðla þeim á viðeigandi hátt,
- geti þróað og beitt rannsóknaraðferðum í tónlist,
- sé læs á og geti gagnrýnt eigin verk og annarra á faglegum forsendum og komist að sjálfstæðum og rökstuddum niðurstöðum.
Hæfni
Að loknu námi getur nemandi hagnýtt þekkingu sína og leikni í starfi og/ eða frekara námi. Í því felst að nemandinn:
- hafi þróað með sér nauðsynlega námshæfni og sjálfstæði í tónlist til að geta tekist á við frekara nám,
- geti átt frumkvæði að listrænum verkefnum, geti tekið virkan þátt í og leitt samstarf og axlað ábyrgð á eigin vinnu og annarra,
- geti þróað og sett fram margbrotin viðfangsefni tónlistar, einn eða í samstarfi við aðra og greint út frá faglegum forsendum á almennum og sérhæfðum vettvangi,
- hafi hæfni til að setja fram og lýsa faglegum viðfangsefnum tónlistar í ræðu og riti á ensku,
- geti tekið sjálfstæðar, faglegar ákvarðanir og rökstutt þær,
- geti tekið sjálfstæða og gagnrýna afstöðu til þess hvenær mismunandi greiningaraðferðir eigi við í rannsóknum og tónlistariðkun.