Tónlistardeild
Tónsmíðar MA Tónvísindaleg rannsókn
10 ECTS tónsmíð og 20 ECTS ritgerð
Lokaverk er flutt opinberlega.
Nemandi skrifar 13-15 þúsund orða ritgerð sem er tónvísindaleg rannsókn.
Nemandi flytur fyrirlestur um lokaverkefnið í málstofu tónsmíðanema.
Nemandi skrifar 13-15 þúsund orða ritgerð sem er tónvísindaleg rannsókn.
Nemandi flytur fyrirlestur um lokaverkefnið í málstofu tónsmíðanema.
2019 - 2020
Kennsluskrá
1. ár Haustönn | |
---|---|
Tónsmíðar COM1TM / 9 ECTS |
A S |
Hljóðfærafræði * INO0104TM / 4ECTS |
A B |
Raftækni/ hljóðfræði * EST0104TM / 4ECTS |
A B |
Rannsóknir á íslenskri tónlist RIM1TM / 5 ECTS |
F S |
Deilan MHV10002DE / 2 ECTS |
F S |
Rannsóknarsmiðja RAN0010MK / 10 ECTS |
F S |
Val 2 ECTS |
V |
1. ár Vorönn | |
---|---|
Tónsmíðar II COM2TM / 15 ECTS |
A S |
Hljóðfærafræði * INO0204TM / 4ECTS |
A B |
Raftækni/ hljóðfræði * EST0204TM / 4ECTS |
A B |
Tónlistarfræði ** MUS1TM / 5 ECTS |
F S |
Val 6 ECTS |
V |
2. ár Haustönn | |
---|---|
Tónsmíðar III COM3TM / 15 ECTS |
A S |
Hljóðfærafræði * INO0304TM / 4ECTS |
A B |
Raftækni/ hljóðfræði * EST0304TM / 4ECTS |
A B |
Tónlistarfræði ** MUS2TM / 5 ECTS |
F S |
Val 4 ECTS |
V |
2. ár Vorönn | |
---|---|
Lokaverkefni: tónsmíð FPMRTM / 10 ECTS |
F S |
Lokaverkefni: ritgerð FPMRTM / 20 ECTS |
F S |
*Aðalfagsval, nemandi velur annaðhvort hljóðfærafræði eða raftækni/hljóðfræði.
**Fræðaval ætti að undirbyggja lokaritgerð ásamt öðru vali.
Hæfniviðmið námsbrautar
Þekking
Að loknu námi býr nemandi yfir þekkingu á sviði tónlistar. Í því felst að nemandinn:
- þekki fagleg viðfangsefni tónlistar og álitamál,
- hafi aflað sér þekkingar með rannsóknum og listsköpun,
- geti fært rök fyrir eigin úrlausnum,
- þekki til helstu strauma, kenninga, aðferða og verka á sviði tónlistar,
- þekki til ólíkra rannsóknaraðferða á fagsviði tónlistar,
- hafi þekkingu á siðfræði tónlistar.
Leikni
Að loknu námi getur nemandi beitt aðferðum og verklagi á sviði tónlistar. Í því felst að nemandinn:
- hafi tileinkað sér viðeigandi vinnubrögð og aðferðir til sköpunar og/eða flutnings á tónlist,
- hafi kunnáttu til að greina tónlist og miðla niðurstöðum hennar á ólíkan hátt,
- geti skilið og tekist á við flókin viðfangsefni innan tónlistar í fræðilegu samhengi,
- geti nýtt þekkingu sína og skilning í faglegri vinnu og starfsumhverfi tónlistar,
- hafi náð tökum á og geti beitt viðeigandi aðferðum, tækni og/eða hugbúnaði við útfærslu á verkum,
- geti aflað gagna, greint þau og metið í rannsóknar- og listsköpunarferli,
- geti sýnt frumleika í verki, beitt innsæi og ímyndunarafli til hvers konar tónlistariðkunar,
- geti nýtt þekkingu sína, skilning og úrlausnarhæfni við nýjar og ókunnuglegar aðstæður og í þverfaglegu samhengi tónlistar og tengdra fræða,
- geti tekið sjálfstæðar ákvarðanir og þróað verkefni og sett í samhengi við kenningar fagsviðs tónlistar,
- hafi getu og innsæi til að samþætta þekkingu og takast á við flókin viðfangsefni tónlistar og miðla þeim á viðeigandi hátt,
- geti þróað og beitt rannsóknaraðferðum í tónlist,
- sé læs á og geti gagnrýnt eigin verk og annarra á faglegum forsendum og komist að sjálfstæðum og rökstuddum niðurstöðum.
Hæfni
Að loknu námi getur nemandi hagnýtt þekkingu sína og leikni í starfi og/ eða frekara námi. Í því felst að nemandinn:
- hafi þróað með sér nauðsynlega námshæfni og sjálfstæði í tónlist til að geta tekist á við frekara nám,
- geti átt frumkvæði að listrænum verkefnum, geti tekið virkan þátt í og leitt samstarf og axlað ábyrgð á eigin vinnu og annarra,
- geti þróað og sett fram margbrotin viðfangsefni tónlistar, einn eða í samstarfi við aðra og greint út frá faglegum forsendum á almennum og sérhæfðum vettvangi,
- hafi hæfni til að setja fram og lýsa faglegum viðfangsefnum tónlistar í ræðu og riti á ensku,
- geti tekið sjálfstæðar, faglegar ákvarðanir og rökstutt þær,
- geti tekið sjálfstæða og gagnrýna afstöðu til þess hvenær mismunandi greiningaraðferðir eigi við í rannsóknum og tónlistariðkun.