Fyrir hverja er námskeiðið: Söngkennarara og söngvara
Nauðsynlegt er að allir þeir sem syngja eða flytja texta á íslensku hafi grunnþekkingu á hljóðkerfisreglum íslenskunnar. Sú þekking er forsenda þess að geta sungið eða flutt texta á vönduðu íslensku máli og borið fram erlend tungumál án íslensks hreims. Mikilvægt er að þekkja hið alþjóðlega kerfi IPA og geta skráð og lesið úr hljóðfræðitáknum.
IPA hljóðritunarkerfið er kynnt, ítarlega fjallað um hljóðkerfi íslenskrar tungu, myndun hljóða og framburðröddun, brottföll og samlagnir, vandaðan og óvandaðan framburð, oföndun, mállýskur og fleira er tengist framburði. Námskeiðið er á bakkalárstigi.
Námsmat: Símat, skrifleg verkefni.
Kennari: Þórður Helgason
Staður og stund: Sölvhólsgata 13, mánudaga kl. 15:00-16:30 auk miðvikudagsins 11. janúar
Tímabil: 9.janúar - 13. febrúar 2017
Forkröfur: BA próf eða sambærilegt tónlistarnám.
Verð: 30.000 (án eininga) / 40.000 (með einingum)
Nánari upplýsingar: Elín Anna Ísaksdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar: elinanna [at] lhi.is