Í Bandaríkjunum eru til bleik fangelsi. Þar eru allir fangar látnir klæðast bleiku frá toppi til táar í þeim tilgangi að mýkja þá. Silúettu fangaklæða má tengja við hip-hop klæðnað en horft var til hip-hop-menningar og fyrirmynda þaðan við hönnun línunnar. Tónlist getur hjálpað manneskju að komast frá vandamálum sínum og verið leið til að finna fyrir auknu frelsi. Línan er hönnuð fyrir konu sem fylgir ekki endilega stöðluðum reglum um klæðaburð og hegðun. Hún lætur ekki stjórna sér. Hún er alltaf á ferðinni og klæðist því þægilegum fötum. Hraði er hennar fíkn og hún leitar sífellt að nýjum áskorunum.