Næstkomand fimmtudag, 23. Nóvember, blæs Hönnunarmiðstöð á ný til fyrirlestraraðarinnar SmallTalks, en röðin skipar mikilvægan sess í flóru viðburða á sviði hönnunar og arkiektúrs. Fyrsti fyrirlestur vetrarins fjallar um hönnunar- og nýsköpunarverkefnin Genki & Gola þar sem Jón Helgi Hólmgeirsson, yfirhönnuður Genki Instruments, og Shui Yi, samskiptahönnuður tala um verk sín. Þau eru bæði fyrrverandi nemendur við Hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands.
 
 
Jón Helgi Hólmgeirsson
Jón Helgi útskrifaðist sem vöruhönnuður frá LHÍ árið 2012 og hefur síðan unnið fjölbreytt og spennandi verkefni. Hann hefur meðal annars hannað fyrir Bility, IKEA og Fólk og hlaut hin virtu Red Dot hönnunarverðlaun fyrir hönnun á umbúðum fyrir Norðursalt. Jón Helgi mun fjalla um feril sinn sem ungur vöruhönnuður og kynnir nýjasta verkefni sitt sem kallast Wave en það er þróað af tækni- og sprotafyrirtækinu Genki Instruments. Wave er hringur hannaður fyrir tónlistarfólk. Wave nemur hreyfingar handarinnar, snúning og slátt, þannig að tónlistarfólk getur stjórnað hljóði og rafrænum hljóðfærum með einföldum og sjónrænum hætti. Hljómsveitin Ayia var sú fyrsta til að nota Wave á tónleikum á Airwaves-hátíðinni en strákarnir hjá Genki sem eru fjórir talsins hafa verið í samstarfi við tónlistarfólk við útfærsluna.
 
3fecb8bb365afdb.jpg
Ljósmynd: HA
 
Shu Yi
Shu Yi er samskiptahönnuður (e. communication designer) og listamaður frá Peking í Kína. Hún menntaði sig og starfaði í Kína og Bretlandi og lauk meistaranámi í hönnun við Listaháskóla Íslands árið 2016. Shu segir frá nýjasta verkefni sínu Gola sem sýnir í rauntíma upplýsingar um veðurspá um allan heim. Markmið Shu er að nýta lögmál sjónrænnar miðlunar til að samþætta upplýsingar og umhverfi og þannig draga úr streitu og kvíða. Gola er meðal verðlaunahafa Red Dot verðlaunanna í ár. Verkið byggir á útskriftarverkefni hennar  en Lóa Auðunsdóttir kennari við braut grafískrar hönnunar var leiðbeinandi Shu.
 
Verkefni Jóns Helga og Shu, Genki og Gola, fengu bæði styrk úr Hönnunarsjóði Íslands.
 
1cd1d19d59be9b7.jpg
Ljósmynd: Magnús Elvar Jónsson

 

SmallTalks
SmallTalks er fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar Íslands sem haldin verður í IÐNÓ í vetur. Þar ræða hönnuðir og arkitektar um verkefni sín og málefni líðandi stundar eru tekin fyrir. Markmiðið er að halda uppi líflegri umræðu um það sem helst er að gerast á sviði hönnunar og arkitektúrs.
 
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!
 
Þessi umfjöllun byggir á frétt Hönnunarmiðstöðvar og er birt með góðfúslegu leyfi þeirra. Forsíðumynd fréttarinnar: Stúdíó Fræ fyrir viðtal Genki Instruments í tímaritinu HA.