Fimmtudaginn 19.október opnaði einkasýning Sigurðar Atla Sigurðssonar Everyday Fortune í sýningarrými PRÁM Studio í Prag. Sýningin sem stendur til 30.október er afrakstur þriggja vikna gestavinnustofudvalar Sigurðar Atla hjá PRÁM Studio.
Á sýningunni má sjá málverk, teikningar, prentverk og klippimyndir á baðmottur, textíl og pappír, ásamt bókverki prentuðu með Risograph tækni í samstarfi við Kudlapress.
Sigurður Atli Sigurðsson lauk meistaranámi í myndlist við Ecole Supérieure d’Art et de Design Marseille-Méditerranée árið 2013 eftir að hafa útskrifast frá Myndlistardeild Listaháskóla Íslands. Af nýlegum sýningum má nefna: Other Hats - International Print Center New York, Mynd af þér – Skaftfelli, Prent & vinir - Harbinger, Do Disturb – Palais de Tokyo, #KOMASVO - Listasafni ASÍ og Feldstarke – Kyoto Art Center.
Verkefnið er styrkt af Myndlistarsjóði, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar og Sambandi íslenskra myndlistarmanna.
Sigurður Atli starfar sem umsjónarmaður verkstæðis og þjónustufulltrúi við myndlistardeild Listaháskóla Íslands.