Sigríður Geirsdóttir hefur verið ráðinn sem verkefnastjóri á sviði gæða, kennslu og rannsókna (GKR) við Listaháskóla Íslands.

 Meðal verkefna sem hún mun sinna eru framkvæmd og úrvinnsla kennslumats sem og annarra innri kannana skólans, endurskoðun á Gæðahandbók skólans, þróun verkferla og stuðningur við sjálfsmat deilda. Þá mun hún starfa sem ritari kennslunefndar og vinna með nefndinni að kennsluþróun við skólann. 
 
Sigríður hefur lokið BA-gráðu í íslensku, BS-gráðu í sálfræði og MA gráðu í Uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskóla Íslands. Síðastliðin tvö ár hefur hún unnið í SharePoint teymi Spektra ehf., og þar áður stýrði hún ólíkum verkefnum m.a. í Norræna húsinu og á Gljúfrasteini, auk þess að kenna í Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. 
 
Forstöðumaður sviðsins er Ólöf Gerður Sigfúsdóttir og Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir er annar verkefnastjóri sviðsins.