Rúna Thors hefur verið ráðin aðjúnkt og nýr fagstjóri vöruhönnunar

 

Rúna Thors er menntaður vöruhönnuður frá Design Academy Eindhoven í Hollandi og auk þess með MA gráðu í Hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Hún hefur kennt við námsbraut í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands frá árinu 2011 og gegnt starfi verkefnastjóra hönnunar- og arkitektúrdeildar frá árinu 2015. Rúna nálgast viðfangsefni sín í gegnum tilraunir. Í vinnu sinni leggur hún áherslu á opið og skapandi ferli og treystir aðferðarfræðinni til að leiða sig á óvæntar slóðir. Hún hefur unnið að fjölbreyttum hönnunarverkefnum, sjálfstætt og sem hluti af hönnunarteymunum Attikatta, Whitehorse og TOS. 

 

Við bjóðum Rúnu hjartanlega velkomna til þessara nýju starfa við hönnunar- og arkitektúrdeild.