Sérlegur útsendari frá Listkennsludeild Listaháskóla Íslands var á staðnum til að fá innblástur og vera með í samtalinu um þetta mikilvæga málefni.
Arite Fricke, kennari í Bláskógaskóla í Reykholti hélt flugdrekasmiðju og einnig sýndi
Richard Irvine nokkrar kennsluaðferðir en Richard var aðal fyrirlesari ráðstefnunnar. Hann hefur 25 ára reynslu í útinámsfræðum og hefur kennt mikið í skógum og við strendur suð-vestur Englands.
Í haust verður boðið upp á
tvö námskeið tengd útinámi í LHÍ. Annars vegar er það námskeiðið
Upplifunar og útinám og hinsvegar
Tálgað og tengt við náttúruna.
Bæði námskeiðin verða í boði í Opna listaháskólanum og hægt er að fylgjast með námsframboði í Opna LHÍ hér.