Eva María Árnadóttir tekur til starfa sem fagstjóri í fatahönnun og verkefnastjóri hönnunar- og arkitektúrdeildar.
 
Eva María Árnadóttir er með BA gráðu í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands og MSc gráðu í stjórnun fyrirtækja frá Stockholm School of Economics. Eva María hefur starfað við fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands með hléum frá 2011 en gegnir nú hlutverki fagstjóra í fjarveru Katrínar Maríu Káradóttur auk þess að starfa sem verkefnastjóri hönnunar- og arkitektúrdeildar í hálfu starfi. Þá veitir hún jafnframt Hollnemafélagi Listaháskólans formennsku. Í rannsóknum sínum hefur Eva María beint sjónum sínum að því hvernig gera megi framleiðslu á fatnaði umhverfisvænni og standa vörð um réttindamál starfsfólks verksmiðja. Auk starfa sinna fyrir Listaháskóla Íslands hefur Eva starfað við fataiðnað hér heima og erlendis, útivistarfatamerki, tískuhús og merki með áherslu á hæga tísku (e. slow fashion).
 
Við bjóðum Evu Maríu hjartanlega velkomna til starfa.