Í Norræna húsinu opnar í dag, miðvikudag, sýningin BORGARVERAN en þar er spurt: Hvernig verður daglegt líf í borg framtíðarinnar?

Anna María Bogadóttir arkitekt og aðjúnkt í arkitektúr við Listaháskóla Íslands er sýningarstjóri en bæði kennarar og fyrrverandi nemendur skólans í arkitektúr, hönnun og myndlist eiga verk á sýningunni. Má þar nefna Arkibúlluna, Krads arkitekta, Þórunni Árnadóttur, Sigrúnu Torlacius og Hildi Bjarnadóttur. Meðal annarra sem eiga verk á sýningunni er hin þekkti danski arkitekt Jan Gehl en verk hans og skrif um borgarrými hafa haft mikil áhrif á borgarhönnun og arkitektúr víða um heim.

Um sýninguna segir á síðu Norræna hússins:

„Sýningin BORGARVERAN skyggnist inn í innviði borgarinnar – sýnilega og ósýnilega, ofanjarðar og neðanjarðar, náttúrulega og manngerða.

Um leið er velt upp hugmyndum um borgina og veruna í borginni. Valin verk samtímahönnuða og myndlistarmanna, eru sett í samhengi og samtal við eldri hugmyndir og drauma um borgina. Sótt er í ólíka miðla, verkfæri og aðferðir sem varpa ljósi á það hvernig við mótum borgina og hvernig borgin mótar okkur.“

Á meðal höfunda verka og verkefna á sýningunni:
Arkibúllan (IS)
Bêka & Lemoine (FR/IT)
Einar Þorsteinn Ásgeirsson (IS)
Hildur Bjarnadóttir (IS)
Hreinn Friðfinnsson (IS)
Jan Gehl (DK)
Jón Þorláksson (IS)
Krads arkitektar (IS/DK)
Ragnar Kjartansson (IS)
Sigrún Thorlacius (IS)
Sigurður Guðmundsson (IS)
Úti og inni arkitektar (IS)
Þórunn Árnadóttir (IS)

Sýningin stendur til 5. nóvember.