ÁHORF! Ljósmyndun, eftirlit og mótmæli

Fyrirlestur á Ljósmyndahátíð Íslands: Þjóðminjasafni Íslands, fimmtudaginn 18. janúar kl. 12-13.

 

Í fyrirlestrinum mun Louise Wolthers fjalla um rannsóknarverkefni sitt ÁHORF! Eftirlit, list og ljósmyndun (2016-2017) og nokkur lykilverk sem sýnd voru á samnefndri sýningu í Hasselblad Center í Gautaborg, í Kunsthall Aarhus og C/O í Berlín. Louise mun auk þess fjalla um nýja sýningu framundan sem líta má á sem framhald af þeirri fyrri og nefnist Sjónsvið dróna: herðnaður, eftirlit, mótmæli (2018). Bæði þessi verkefni vekja upp spurningar um hlutverk ljósmyndunar í fjölsæissamfélagi – og varpa ljósi á hvernig beita megi fjölsæinu sjálfu til að vinna gegn auknu eftirliti og alsæi. Upplýsingar um verkefnið má m.a. nálgast hér.

 

Louise Wolthers er yfirmaður rannsóknasviðs og sýningarstjóri hjá Hasselblad stofnuninni í Gautaborg. Hún lauk doktorsprófi frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2008 og fjallaði doktorsritgerð hennar um ljósmyndir og söguritun. Louise vinnur nú að rannsóknarverkefni um millistríðsárin, ljósmyndun og mannréttindi. Louise Wolthers er eftirsóttur fyrirlesari og sýningarstjóri og hafa bæði fræðileg skrif hennar og sýningar við Hasselblad stofnunina og önnur listasöfn vakið mikla athygli. Má þar nefna sýninguna ÁHORF! Eftirlit, list og ljósmyndum, sýningu sænska ljósmyndarans Kent Klich með ljósmyndum frá Gaza svæðinu og sýningu hollensku listakonunnar Rineke Dijkstra sem hlaut Hasselblad verðlaunin árið 2017.

 

Fyrirlesturinn er hluti af Ljósmyndahátíð Íslands og er haldinn í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands en dagskrá hátíðarinnar má nálgast hér