Rannsóknarstofa: Hvað leynist í náttúrunni?

Hvað leynist í náttúrunni sem við höfum aldrei séð eða heyrt? Rúmlega sjötíu nemendur í 5. bekk Laugarnesskóla standa fyrir sýningu á listrænum afrakstri spennandi þriggja daga rannsóknasmiðju í samvinnu við listkennslunema Listaháskóla Íslands og Grasagarð Reykjavíkur.

Markmið smiðjunnar og sýningarinnar er að vekja athygli á þeim áhrifum sem einstaklingurinn hefur á sitt nánasta umhverfi og náttúruna, í dag og í framtíðinni. Í vinnusmiðjunni er lögð áhersla á fagurfræðilegar upplifanir þátttakendameð áherslu á skynjun eða upplifun þeirra á umhverfinu.

Í vinnunni er einnig lögð áhersla á að þátttakendur smiðjunnar vinni út frá skynfærunum. Smiðjan byggir á virku samspili þátttakenda við umhverfi Grasagarðsins og umræðum um hvernig við byggjum sanngjarnt samfélag sem stuðlar að sjálfbærni

 

Viðburðurinn fer fram í Grasagarðinum í Reykjavík, Holtavegi 32, 104, Reykjavík.