(English below)

Þriðjudaginn 25. október kl. 12:30 mun Joan Jonas flytja erindi um verk sín og vinnuferli í fyrirlestrarsal myndlistardeildar að Laugarnesvegi 91 í tilefni sýningarinnar JOAN JONAS Reanimation details, 2010 / 2012 sem opnar í Listasafni Íslands.

Joan Jonas (f. 1936) er frumkvöðull á sviði vídeó- og gjörningalistar og einn þekktasti myndlistarmaður samtímans. Hún starfar enn ötullega að sköpun nýrra verka, nú um fimmtíu árum eftir að hún hóf að sýna verk sín í heimaborg sinni New York í Bandaríkjunum. Húnhefur haft víðtæk áhrif á samferðamenn sína, verk hennar hafa verið sýnd í helstu listasöfnum heims og hún hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir verk sín. Hún starfar sem prófessor við MIT; Massachussets Institute of Technology, og hefur kennt þar frá árinu 1998.
Joan Jonas var fulltrúi Bandaríkjanna á Feneyjatvíæringnum árið 2015.

Joan Jonas kom til Íslands á níunda áratug liðinnar aldar og skilaði áhrifunum af þeirri heimsókn í verkinu Volcano Saga , frásagnarmyndbandi þar sem Tilda Swinton fer með hlutverk Guðrúnar Ósvífursdóttur í heitri laug umluktri hrjóstrugu eldfjallalandslagi. Þessi nána vísun í Laxdælu  og drauma Guðrúnar, sem rekur sig eftir verkinu eins og rauður þráður, var forleikur að frekari verkum Jonas byggum á íslenskum bókmenntum, fornum og nýjum. Verk hennar Reanimation,  sem sýnt er í Listasafni Íslands, er sprottið af lestri hennar áKristnihaldi undir Jökli  eftir Halldór Laxness, örstuttri tilvísun skáldsins í Eyrbyggju , lagðri í munn sögumanni og fjallar um það þegar Þórgunna gengur aftur og finnur mjölið í búrinu til að baka brauð ofan í svanga líkflutningamenn sína.

Joan Jonas er meðal þeirra listamanna sem fyrstir tóku vídeóvélina í sína þágu. Hún kynntist hinni nýju tækni í Japan árið 1970, þegar fyrstu handhægu upptökuvélarnar voru nýkomnar á markað. Hún hafði þá stundað höggmyndalist í nokkur ár, danslist hjá danshöfundunum Trishu Brown og Yvonne Reiner auk gjörninga, sem hún sviðsetti með margháttaðri notkun spegla sem brjóta upp einhliða skynheim áhorfandans og beina athygli hans í margar áttir samtímis. Grundvöllur Jonas hefur ætíð verið einfaldur þótt útkoman sé margslungin og marglaga. Meðan hún skundar um myrkvað sviðið sem hún byggir gjarnan upp með tjaldi fyrir vídeóvörpun, teiknar myndir beint á vegg, fremur ýmis hljóð með bjöllum, pappírsskrjáfi eða ásláttarbrestum, líður verkið áfram eins og fljót sem kvíslast að ósi. Áhorfandinn þarf að hafa sig allan við til að fylgjast með atburðarásinni sem á sér stað víðsvegar um sviðið.  

Í Reanimation, líkt og svo mörgum öðrum verkum Jonas sem byggð eru á bókmenntum, goðsögum og munnmælum, kemur fram glöggur skilningur hennar á smáatriðum sögulegrar framvindu. Hún dregur athygli áhorfandans að stuttu innskoti í frásögninni og bregður með því ljósi á heilan heim hugmynda og hugrenninga sem oftar en ekki lúta að brýnustu málefnum tilverunnar. Það er ekki að ófyrirsynju að sú tætta frásögn og moð skírskotana sem birtist í Kristnihaldi Laxness skuli verða Jonas fóður í fleiri en einu verki. Hún er í hlutverki þularins, töframannsins og spákonunnar sem sýnir okkur að endurlífgun, uppvakning og afturganga eru endurspeglun á hringrás tilverunnar. Að Laxness skuli varpa ljósi á þessa merkilegu uppvakningu í Eyrbyggju  telur Jonas vera til marks um skýra afstöðu skáldsins til náttúrunnar. Hún undirstrikar skilning hans á tilverunni með því að benda á kaflann um býfluguna og fífilinn, ilmanina sem heillar skordýrið og breytir því í burðardýr fyrir tilviljanakennt frjómagn, mögulega á enda veraldar.

Íslandstengd verk Joan Jonas eru nú sýnd í fyrsta sinn á Íslandi. Verkið Reanimation er sýnt í Listasafni Íslands og verkið Volcano Saga er sýnt í Listasafninu á Akureyri.

Sýningarnar eru samstarfsverkefni safnanna beggja og eru styrktar af sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi og Safnaráði.

 


 

On Tuesday the 25th of October at 12:30 pm an open lecture by Joan Jonas will be held at the Department of Fine Art, Laugarnesvegur 91. Her exhibition JOAN JONAS Reanimation details, 2010 / 2012 will open at The National Gallery of Iceland.

Joan Jonas (b. 1936) is a pioneer of video and performance art and one of the most acclaimed working artists. She has had a profound impact on her contemporaries and her award-winning work has been the subject of several retrospectives at major art museums. Additionally, she is professor emerita at MIT (Massachussets Institute of Technology).
Joan Jonas represented the US at the Venice Biennale in 2015.

Joan Jonas came to Iceland in the 1980s. Her impressions of the visit inspired Volcano Saga, 1985 - a video made with actress Tilda Swinton in the role of Guðrún Ósvífursdóttir. This close reference to Laxdaela Saga was a prelude to further works by Jonas based on Icelandic literature, both ancient and recent. Reanimation is rooted in her interpretation of Halldór Laxness’ novel Under the Glacier.

Joan Jonas is among the first artists to use the video camera in her works. She discovered the new device on a journey to Japan in 1970 when the Portapak was in its prime. Prior to this, Jonas’ worked in sculpture, took workshops in dance (with such choreographers as Trisha Brown and Yvonne Rainer) and created performances, which she staged with various kind of mirrors, used to divert and splinter the spectator‘s sense of perception. Despite the diversity of her work and variety of mediums, Jonas‘ core remains consistent. During a performance, the audience watches Jonas continuously activate the stage. She interacts with figures in her video projections or intermixes the projections with live drawings made on an overhead projector. She creates noise with bells, rustling paper or percussive instruments. The spectator stays busy, following the scenes as they intuitively flow into each other.

Reanimation Detail, 2010 / 2012, as in many other of Jonas‘ works, takes its cue from a mixture of literary sources and folk myths. Using direct passages and inspiration from Laxness‘ Under the Glacier, Jonas assumes the role of the rhapsode, who shows us that the resurrection, apparition and wraith are not as unnatural as we might expect but rather the reflection of the cycle of life. That Laxness should put focus on the extraordinary rising of bread in Eyrbyggja Saga is in Jonas‘ view a sign of the author‘s keen awareness of nature. She emphasizes his level of understanding by referring to the chapter on the bee and the dandelion, in which the dandelion scent attracts the insect and turns it into a carrier of spores, taking them beyond the horizon.

Joan Jonas´s works Reanimation Detail, 2010 / 2012 and Volcano Saga, 1985 are now shown for the first time in Iceland, at the National Gallery of Iceland and the Akureyri Art Museum and are a collaboration of the two art museums.