ANNA ANDREA WINTHER

EIN MEÐ ENGU

 

Einkasýning Önnu Andreu Winther opnar fimmtudaginn 26. október kl.17:00 – 19:00 í fyrrum söluturni við Sunnutorg, Langholtsvegi 70. Sýningin er í röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist.

Hvernig umbreytist efniviður í neysluvöru?

 

anna
 

 

Á tímabilinu 5. október – 3. desember stendur yfir röð 23 einkasýninga nemenda á 3. ári við myndlistardeild Listaháskólans.

Á hverjum fimmtudegi á tímabilinu opna í senn þrjár einkasýningur í mismunandi sýningarýmum skólans í Laugarnesi, í Naflanum sem er í miðju húsinu, Kubbnum á annarri hæð og Huldulandi sem er innst í húsinu, sem þekkt er fyrir langa ganga og ranghala. Einn nemandi mun sýna í fyrrverandi söluturninum við Sunnutorg á Langholtsvegi 70. Sýningaropnanir eru á fimmtudögum kl. 17-19 og eru allir velkomnir.

Á föstudögum kl. 15 (nema annað sé auglýst) fara fram leiðsagnir um sýningarnar þar sem nemendur segja frá verkum sínum. Almennt byrjað í Nafla.

Einkasýningar nemenda eru liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora, í umsjón Bjarka Bragasonar. Leiðbeinendur ásamt Bjarka eru Unnar Örn og Anne Rombach. Juliane Foronda sinnir aðstoðarkennslu en gestir í námskeiðinu hafa verið Nadim Samman, Werner Herzog og Sigrún Sirra Sigurðardóttir.