Stefan Marbach, einn aðaleiganda Herzog & de Meuron 
Project Insights
Fyrirlestur í Norræna húsinu, þriðjudaginn 24. apríl kl. 17.00
 
Þriðjudaginn 24. apríl gefst einstakt tækifæri til að hlýða á arkitektinn Stefan Marbach, einn aðaleiganda svissnesku arkitektastofunnar Herzog & de Meuron, flytja fyrirlestur og veita innsýn í valin verkefni. Stofnendur stofunnar, Jacques Herzog og Pierre de Meuron, hlutu hin virtu Pritzker verðlaun árið 2001 en Stefan Marbach hefur starfað með þeim í rúman aldarfjórðung og verið einn aðaleigandi stofunnar frá árinu 2009. Hann stýrir stórum og fjölbreyttum verkefnum í Sviss, Bretlandi, Frakklandi, Svíþjóð, Rússlandi, Japan og Kína. Meðal þekktra verkefna sem hann hefur leitt er Ólympíuleikvangurinn í Peking í Kína (2008) og Nýi íþróttaleikvangurinn í Bordeaux (2015).
 
Stefan Marbach er hér á landi til þess að dæma lokaverkefni BA nemenda í arkitektúr við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands, sem stendur fyrir fyrirlestrinum í samstarfi við Arkitektafélag Íslands, Hönnunarmiðstöð og SAMARK.
 
Fyrirlesturinn verður í Norræna húsinu. 
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
 
 
Ljósmynd: Adriano A. Biondo / biondopictures 
Nánar um Herzog & de Meuron:https://www.herzogdemeuron.com/