Einleikur á gítar og kammertónlist í Háteigskirkju mánudagskvöld 4.desember kl 20:

Brynjar Friðrik Pétursson leikur á gítar og Kristín Þóra Pétursdóttir (klarinett), Þórdís Gerður Jónsdóttir (selló) og Elísa Elíasdóttir (píanó) flytja tríó eftir Glinka.



Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!



Skammdegistónleikaröð tónlistardeildar er yfirheiti nemendatónleika í lok haustannar. Tónleikaröðin hófst með tónleikum í Hallgrímskirkju þar sem kór og hljóðfæranemendur skólans komu fram. 

Nú hafa tekið við einleiks- og kammertónleikar nemenda og standa þeir samfellt yfir á tímabilinu 25.nóvember til 11.desember.