Jón Helgi útskrifaðist sem vöruhönnuður frá LHÍ árið 2012 og hefur síðan unnið fjölbreytt og spennandi verkefni. Hann hefur meðal annars hannað fyrir Bility, IKEA og Fólk og hlaut hin virtu Red Dot hönnunarverðlaun fyrir hönnun á umbúðum fyrir Norðursalt. Jón Helgi mun fjalla um feril sinn sem ungur vöruhönnuður og kynnir nýjasta verkefni sitt sem kallast Wave en það er þróað af tækni- og sprotafyrirtækinu Genki Instruments. Wave er hringur hannaður fyrir tónlistarfólk. Wave nemur hreyfingar handarinnar, snúning og slátt og þannig að tónlistarfólk getur stjórnað hljóði og rafrænum hljóðfærum með einföldum og sjónærnum hætti. Hljómsveitin Ayia var sú fyrsta til að nota Wave á tónleikum á Airwaves-hátíðinni en strákarnir hjá Genki sem eru fjórir talsins hafa verið í samstarfi við tónlistarfólk við útfærsluna.
Shu Yi er samskiptahönnuður (e. communication designer) og listamaður frá Peking í Kína. Hún menntaði sig og starfaði í Kína og Bretlandi og lauk meistaranámi í hönnun við Listaháskóla Íslands árið 2016. Shu segir frá nýjasta verkefni sínu Gola sem sýnir í rauntíma upplýsingar um veðurspá um allan heim. Markmið Shu er að nýta lögmál sjónrænnar miðlunar til að samþætta upplýsingar og umhverfi og þannig draga úr streitu og kvíða. Gola er meðal verðlaunahafa Red Dot verðlaunanna í ár. Verkið byggir á útskriftarverkefni hennar, sem sjá má hér, en Lóa Auðunsdóttir kennari við braut grafískrar hönnunar var leiðbeinandi Shu.