Hönnunar- og arkitektúrdeild býður nýtt starfsfólk velkomið til starfa og óskar einnig þeim sem hafa fengið framgang í starfi til hamingju.

Í vor hófu störf við deildina Anna María Bogadóttir, aðjúnkt í arkitektúr, og Dainius Bendikas, aðjúnkt í fatahönnun, en nú í haust bætist Björn Guðbrandsson í hópinn sem hefur verið skipaður prófessor í arkitektúr.

Eftir breytingar á reglum skólans geta akademískir starfsmenn skólans nú sótt um framgang í starfi og að loknu matsferli er Tinna Gunnarsdóttir prófessor í vöruhönnun, Garðar Eyjólfsson er dósent í vöruhönnun og Massimo Santanicchia er dósent í arkitektúr. Við óskum þeim innilega til hamingju.