Þorsteinn Þorsteinsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Listaháskóla Íslands og hefur hann störf í ágúst. Þorsteinn er viðskiptafræðingur, cand. ocean, af fjármálasviði frá Háskóla Íslands og hann er einnig með M.Sc. gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík. Hann starfaði áður sem fjármálastjóri hjá Greenqloud og þar áður sem fjármálastjóri hjá Farice.

Listaháskólinn býður Þorstein velkominn til starfa.