Fyrir hver er námskeiðið: Áhugafólk um tónlist. Námskeiðið er valnámskeið á BA - stigi tónlistardeilar.
 
Í námskeiðinu verður farið yfir íslenska tónlistarsögu frá upphafi 20. aldar og fram til nútímans. Elstu verk sem kynnt verða eru frá því um 1920, nýjustu verkin eru samtímaverk. Fjallað verður um tónskáld og íslenskt tónlistarlíf aldarinnar; erlenda tónlistarmenn sem settust að á Íslandi og þau áhrif sem þeir höfðu á íslenskt tónlistarlíf; tilurð módernisma í íslenskri tónlist; þjóðlega tónlist sem uppsprettu tónsköpunar; tónsköpun á 21. öld, raftónlist og þróun hennar, "krossover" síðustu ára o.s.frv.
 
Námsmat: Próf, verkefni og fyrirlestrar.
 
Kennari: Kolbeinn Bjarnason
 
Staður: Skipholt 31, stofa 633.
 
Stund: Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 10:30-12:10.
 
Tímabil: 21.ágúst - 23. október (alls 10 skipti).
  • 21. ágúst, 10:30 - 12:10
  • 23. ágúst, 10:30 - 12:10
  • 28. ágúst, 10:30 - 12:10
  • 04. september, 10:30 - 12:10
  • 11. september, 10:30 - 12:10
  • 18. september, 10:30 - 12:10
  • 02. október, 10:30 - 12:10
  • 09. október, 10:30 - 12:10
  • 16. október, 10:30 - 12:10
  • 23. október, 10:30 - 12:10
 
Forkröfur: Stúdentspróf
 
Verð: 49.000 (án eininga) / 61.200 (með einingum).
 
Nánari upplýsingar: Elísabet Indra Ragnarsdóttir, verkefnastjóri tónlistardeildar. indra [at] lhi.is.