Laugardaginn 28. maí kl. 15 verður opnuð sýning á ljósmyndum Kristínar Bogadóttur, ljósmyndara og nemanda í listkennsludeild, á Veggnum í Þjóðminjasafni Íslands. 

Veðurfréttir eru hluti af íslenskri menningu.  Hjá mörgum er það hluti af notalegum hversdagsleika að hlusta á þær en hjá öðrum er það öryggisatriði. Veðurfréttir  byggjast aðallega á upplýsingum frá sjálfvirkum veðurstöðvum, en einnig frá mönnuðum stöðvum, sem fer þó fækkandi.

En hvernig lítur rok út? Súld, gráð og öll þessi orð sem heyrast í veðurspánum? Af hverju er stundum talað um dálítinn sjó í veðurfréttunum og hvernig lítur hann út?

Til að rannsaka málið heimsótti Kristín þær átta sjóveðurstöðvar sem enn eru mannaðar og úr varð myndröð sem fer réttsælis um landið, á sama hátt og veðurlýsingar eru lesnar upp í veðurfréttunum RÚV. Ljósmyndirnar fjalla um veðrið sem fyrirbæri, skynjun og mikilvægi þess að við töpum ekki þeirri kunnáttu að lesa í umhverfið með því að horfa og hlusta.

Sýningin er hluti af lokaverkefni Kristínar Um fagurfræði hversdagsleikans og dálítinn sjó sem hún vann við listkennsludeild skólans. Kristín mun kynna lokaverkefnið í heild sinni í opinni málstofu í listkennsludeild laugardaginn 4. júní. 

Ljósmynd: Kristín Bogadóttir. Titill: Mánárbakki, austnorðaustan 8, alskýjað, sjólítið, hiti 7 stig