Listaháskóli Íslands býður upp á eins árs meistaranám í sviðslistum frá og með haustinu 2016.

Kynningarfundur um námið verður haldinn í Sölvhóli, mánudaginn, 23 maí kl. 17:00, þar sem deildarforseti og nýr fagstjóri námsins  kynna námið og þá erlendu kennara sem koma að náminu en þau eru Kirsten Dehlholm, Lauren Barri Holstein, Ant Hampton og Franko B.
 

Alþjóðlegt meistaranám í samtíma sviðslistum við Listaháskóla Íslands skapar nemendum vettvang til að dýpka og auka þekkingu sína á sviði samtíma sviðslista sem og að styrkja persónulega sýn þeirra á listformið.

Sækið um hér: www.lhi.is/umsoknir

Meistaranámið er samfellt tólf mánaða nám sem beinist að því að nemandinn þrói aðferðafræði og nálgun sína við listformið. Lögð er áhersla á að í listsköpun og rannsóknum nemenda eigi sér stað markviss uppbygging þekkingar sem og vinna með þau viðfangsefni og aðferðir sem nemandinn leggur upp með í upphafi náms. Jafnframt er lögð áhersla á að nemendur nái góðu valdi á faglegum viðmiðum sviðslista og miðar námið að því að efla færni nemenda í aðferðum fagsins og þjálfa þá í að fjalla um eigin verk. Námið gerir miklar kröfur til sjálfstæðra vinnubragða. Áhersla er lögð á að skapa örvandi og kraftmikið andrúmsloft sem hverfist um helstu viðfangsefni samtímasviðslista og samfélagsins hverju sinni. Meginmarkmið námsins eru að nemendur geti starfað sem sjálfstæðir, virkir og ábyrgir listamenn.

Eitt sérkenni meistaranáms við Listaháskóla Íslands er návígi nemenda við önnur fagsvið lista við skólann. Boðið er upp á samstarf á sviðum myndlistar, tónlistar, hönnunar og sviðslista í sjálfstæðri vinnu nemenda, sem og í fræðinámskeiðum deildanna.

Nám á meistarastigi felur í sér þátttöku á starfsvettvangi lista. Sviðslistadeild er í samstarfi við allar helstu sviðslistastofnanir hér á landi, auk innlendra og erlendra samstarfsskóla og sækist eftir því að eiga í virku samtali við frumkvöðla, hugsuði og listamenn samtímans á alþjóðlegum vettvangi.

Námið byggir á víðtækri samþættingu þeirra listrænu þátta sem búa að baki frumsköpun í sviðslistum.